|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 21685
|
18.09.2008 23:03:09 / ardisin
halló halló !! Voða er maður latur við þetta bras.. enda allir komnir með þetta myspace og maður er eini lúðinn á landinu Reyndar á ég myspace, en ég skil ekkert hvað ég á að gera, ég skil ekki tilganginn, ég kann ekkert á það og ég bara held ég læri aldrei á það, svo viðhorf mitt á því er nú svona í neikvæðari kantinum !!
En annars er skólinn byrjaður, ég er nemandi á almennri braut og það gengur ágætlega.. miðannarprófin eru eftir tvær vikur svo maður þarf að fara að taka sig vel á, og það vel! Stundartaflan mín er eins og hjá grunnskólabarni svo ég get unnið eins og vitleysingur með skólanum.. og það er nú ekki verra.! Ég skrapp í borgarreisu um síðustu helgi og verslaði svona helstu birgðirnar í fataskápinn. Var hjá Hjörleifi og Söru og við Unnar vorum aðalega í búðum, á rizzo pizza eða í bíó Fórum á Mama mia og ég verð nú að segja að ég varð eiginlega fyrir vonbrigðum, því að þetta var nú ekki alveg eins og ég hélt að þetta yrði, allavega ekki miðað við lýsingarnar hjá fólki sem er búið að fara oftar ein einu sinni!! það kallast þolinmæði ! annað hvort er ég ekki svona mikil kjélling í mér eða bara eitthvað skrýtin. En við kíktum líka í heimsókn til Svans (bróður Unnars), Rutar og Þórhalls, hann er sko orðinn stór litla krílið =) hihi, farinn að skríða og borða lifrapylsu, minn maður ;D
En þessi vika er svona vinnuvika, staffapartý annað kvöld, svona sumarslútt hjá okkur, og svo er það laufskálaréttarhelgi aðra helgi og ég held að allir skagfirðingar séu með fiðring í maganum af tilhlökkun til hennar .. eða allavega ég loksins lögleg inná þessu, og engar hættur nema maður hagi sér illa, sem gerist auðvitað ekki. En annars er lítið í fréttum, erum að fara að sýna leikrit í skólanum, tökum á Tjá og Tundri, sem verður held ég geðveikt skemmtilegt. Erum samt ekkert búin að fá að vita en hver leikrur hvað, en það er allavega alveg gríðó spennó :] Þetta fjallar um brúðkaup þar sem allt fer í vaskinn, brjáluð vinkona og frekar lauslát móðir brúðarinnar svo ekki sé til vægara orða tekið.
En ég held að það sé kominn háttatími þetta er allavega fínt í bili.
Góða nótt . ° Elín Árdís Björnsdóttir °

»
05.08.2008 13:46:38 / ardisin
hellú. (: Þá er maður nú mættur til vinnu eftir langa og viðburðarríka helgi. Hún byrjaði á Sigló á föstudaginn eftir vinnu. Ég, Ragga, edda og Erla skelltum okkur með Jóni Gunnari sem var driver. Þegar á Sigló var komið fórum við nú svona að aðskiljast og ég og Ragga hittum Steffý frænku. Leituðum allavega í klukkutíma eða svo að Skagfirðingasvæðinu, og fundum það svo fyrir rest þegar við vorum búnar að reyna að finna allar síldarverksmiðjur sem við gátum fundið og öll græn bárujárnshús líka. Veit ekki hvort það var Eyrún eða Ragnheiður... en allavega voru þær ekki alveg að finna útúr þessu í sameiningu í gengum tólið. hihi! En þegar þangað var komið var lýðurinn kampa kátur og allt í fínasta þar. Vorum þar þangað til að við fórum heim.. að vísu kíkti ég aðeins á mömmu og pabba. Vaknaði svo snemma á laugardag og fór að vinna.
Á laugardag eftir vinnu og ljúffengt eggjabrauð héldum ég Unnar og Eyþór á Akureyri. Brunuðum af stað um tvö leytið og kíktum aðeins í Glerártorg.. ég splæsti mér í nýja kawasaki skó og íþróttabuksur. Á meðan fóru drengirnir í Bónus og keyptu sér helstu þarfir til að lifa helgina af. Svo var farið í að finna strákana þ.e.a.s Frigga, Ella, Helga, Ása, Bjögga og þá. Þar sem þeir voru bara í einhverjum garði í raðhúsi reyndist það ekkert svo auðvelt en bjargaðist nú á endanum. En þegar við komum voru þeir í misgóðum ástöndum að taka allt saman, vegna óútskýranlegra orðsaka. En svo heppilega vildi nú til að bjórvörubíllinn brunaði framhjá rétt í því augnabliki og tók bara tjöldin fyrir þá í heilu lagi, svo ekki var sú vinna mikil meiri. En við ákváðum nú bara að vera pínu grand á því og sváfum á gistiheimili þar sem að það kostaði jafn mikið og helgarpassinn á tjaldstæðið. Skelltum okkur svo á pizzahlaðborð á Greifanum, og kíktum svo á torgið. Ég trítlaði svo upp bröttustu og erfiðustu brekku á landinu þarna í gilinu og kíkti á Hjörleif og Söru sem voru á tjaldstæðinu á Þórunnarstræti. Fór svo aftur niður á gistiheimilið þar sem drengirnir sátu útá svölum að sötra lemon tea. Fórum svo bara á torgið og fylgdumst með dagskránni og hittum fullt af fólki. Svo fóru flestir á Sjallann en ég fór bara snemma að sofa.
Á sunnudag var heilsan misjöfn en við drulluðumst á lappir um hádegið. Fórum á Greifann og snæddum og keyrðum svo bara heim. Við skiluðum Eyþóri og fórum svo heim í sjónvarpssgláp. Fórum svo fram í Bakkaflöt um átta leytið í grill hjá mömmu og pabba. Svo fórum við á ballið í Árgarði um kvöldið. Þar var allt troðið, og maður hitti hina ýmsustu. Eftir ball örkuðum við Unnar heim og lentum í hinum ýmsu ævintýrum, komum allavega skrámuð og hölt heim, haha =D
En nóg af þessu. Bless. -elín 
»
28.07.2008 16:27:10 / ardisin
Voða er maður latur við þetta. (: Hef svona verið að dunda mér við að uppfæra vikunnar og núverandi.. en það er svo mikil dagskrá svona yfir hásumarið að maður gleymir því að internetið sé til eða kanski ekki aaalveg. Ég var að koma úr fellihýsisreisu með Unnari, Benna og Obbu, það var mjög gaman, dúndur veður. Fórum síðasta miðvikudagskvöld, gistum fyrstu nóttina á Akureyri, þar sem tjaldstæðin voru pökkuð af skátum, þá tjölduðum við fyrir utan á grasflötinni hjá Lúlla frænda Obbu, vöknuðum snemma og fórum í bakaríið.. og svo fórum við í Glerártorg, sem er töluvert stærra heldur en þegar ég fór þanga síðast, hehe :] Allt getur nú gerst! Þegar við höfðum verslað helstu birgðirnar til að lifa vikuna af, keyrðum við alla leið á Egilsstaði í Atlavík. Skrúfuðum hýsið upp og komum okkur fyrir.Grilluðum og lögðum okkur svo eftir matinn. Hefðum betur sleppt því að leggja okkur því þegar við vöknuðum var heil fjölskylda búin að planta sér við hliðiná okkur. Allur pakkinn fjórir krakkar, partýpulsur og fótboltar.. hehe En það var fínt,tókum göngutúr í góða veðrinu um kvöldið, og fórum svo að sofa. Tókum bíltúr á föstudaginn, keyrðum á Breiðdalsvík, á Fáskrúðsfjör, Reyðarfjörð, og svona bara léttan og skemmtilegan rúnt. Grilluðum þegar við komum heim og fórum svo í skemmtisiglingu með Lagafljótsorminum. Þar var æjilegt fjör þar, trúbardor og allur pakkinn. Fórum svo að sofa þegar björgunarsveitin var farin að minnast á mikla hlátrakvelli í okkar hýsi, gat það verið ?!. Fórum rúnt á Seyðisfjörð á laugardaginn, mjög skemmtilegt að sjá allt þar, svakaleg heiði sem við fórum yfir brattarbrekkur og allur pakkinn. Kíktum í búðina þar, og hún var allaveganna nútímalegri en þessi á Breiðdalsvík, þ.e.a.s þegar farið er út í pylsubrauðin ;P En svo fórum við í Ásbyrgi, skoðuðum Dettifoss, og skelltum okkur í sturtu, svo var náttúrulega grillað eins og venjulega og spilað á the adult cards Vöknuðum í bongó blíðu í Ásbyrgi, grilluðum og fórum svo að taka okkur saman og rúlla heim. Ísstopp á Húsavík og svo annað á Akureyri J Svo var grillað í gærkvöldið, og meira að segja grillaðir bananar með marsi =) mhm.. það er best. En annars er versló um næstu helgi, veit ekki hvað eg geri, en veit samt að ég ÆTLA á Geira í Garð.. Árgarð. =D vííí.. Ragga með ?? Annars er lítið að frétta nema að mig dreymdi Gunnu í nótt, og hún var sköllótt, hahahah ég bara GUNNA HVAÐ GERÐIRU VIÐ HÁRIÐ Á ÞÉR?? Og hún bara.. ,, mér leið svo illa að ég rakaði það bara af =( ‘‘ hahah!! Fannst þetta fyndið þegar ég vaknaði.!! En ætla að fara að trítla með vörur til Erlu í Vörumiðlun. Arios elín árdís =)
»
30.06.2008 13:46:58 / ardisin
Jæja pöngar, hef ákveðið að rita nokkur orð.
Tíminn hefur liði alveg endalaus hratt síðan að skólinn kláraðist og maður veit ekki af þegar það er bara komin helgi, og þá gerist alltaf eitthvað skemmtilegt =D Það er ágætt í vinnunni, Pétur fer í frí í þarnæstu viku þannig þá þarf ég að sjá um málningadeildina.. sem verður fínt, þarfnast að vísu smá upprifjunar. En ég keypti mér kort í ræktina, og fer yfirleitt í hádeginu, það er ótrúlega þægilegt að taka smá á því enda kemur maður ferskur aftur til vinnu eftir hádegi =)
En um þar-síðustu helgi fórum við í sumarbústaðinn hans Unnars, við og strákarnir, ss Friggi, Eysi, Ási, Jonni, og svo kíktu Bjössi frændi, Björn Magnús, og Maggi í smá stund. En það var mjög gaman, mikil kæti í liðinu, drukkið, sungið, gleymum ekki símaötunum, og svo var spilað ''Matador'' langt fram á nótt Já einnig voru fjallgöngur. Kíktum smá á Akureyri á laugardeginum, skrautleg ferð.. allavega komu menn mis andlitsfríðir heim, hihi
Jónsmessuhátíðin var helgina eftir.. og fórum við á vollanum með svaðalegustu blastara í íslandssögunni. Vorum þó ekki viss hvort við hefðum það alla leið í Hofsós þar sem tryllitækið er komið til ára sinna. En það hófst. Þarna hitti ég Söru og við rútnuðum pínu og kíktum á fólkið, og slöppuðum svo bara af í fellihýsinu mömmu og pabba, þangað til að þau komu úr einhverjum rúnti. Um kvöldið var grillað... og við Unnar og Árni Birgir fórum í tjaldbjörgun til Þóreyjar og Steinunnar, þar sem þær voru í mestu vandræðum með eitthvað tjald sem Gísli Rúnar lánaði Þórey...en það tókst að koma þessu upp eftir miklar pælingar... og hringinar.. =D En um kveldið var partý í einhverju tjaldi... sem ég veit ekki alveg hver átti.. mikið sungið.. og svo dreif líðurinn sig á ball :]
En þessi helgi var fremur róleg.. Við elduðum bara góðan mat.. og ég kíkti aðeins í útskriftarpartý til Obbu.. og svo fórum við upp í krús í gær að prófa fjórhjólið hans Benna, okkur kvemönnunm var auðvitað ekki treyst annarstaðar en á helgirtu svæði ;P En það var bara gaman af því :]
En þetta er komið gott. Ætla að halda áfram að gera uppáhaldið mitt.. þeas verðmerkja alla búðina, því eins og þið vitið litlu börn er kreppan að drepa fólk nú til dags.. eða það heldur það amk!
TakkogBæ. Elín
»
08.06.2008 19:34:52 / ardisin
Já góðan
daginn egg og beikon eins og mæja brimsó myndi segja!! />
Þetta blogg
er í þessu að gefa upp öndina, en það verður ekki lengi því ég er komin til að
kippa þessu í lag =) hef bara ekki tíma til að blogga sjáiði til útaf því að ég
er svo á fullu að lesa 1000.blaðsíðna halldór laxness bókina mína sem ég fékk í
félagsmálaverðlaun á skólaslitunum, haha!! HALLDÓR LAXNESS eðalbindi, held ég
komist seint í gegnum hana en það er aldrei að vita hvernig maður verður í
ellinni, hvort maður verði brjáluð einstæð ferðakjelling útum kvippinn og
kvappinn eða ljúf amma uppí sófa að berjast við að klára laxness. />
> >
En það hefur
nú mikið drifið á dagana, ég er byrjuð að vinna á fullu sem er fínt, það koma
leiðinlegir og skemmtilegir dagar. Skólaslitin voru fyrir viku eða svo og
flestir mættu í sínu fínasta pússi og það voru líka alveg nokkrar ræður
fluttar, mis skemmtilegar!! Svo þegar lýðurinn var búinn að geispa
allnokkrum sinnum þá loksins kom að kríningunum, eða útskriftinni. Allir gengu
upp að sviðinu og fengu rós og tvö umslög, annað með þvottaleiðbeiningum frá
kvennfélaginu haha, og hitt voru einkunnirnar. Svo voru veittar viðurkenningar,
ég fékk nú laxness félaga og svo heims atlas sem er ágæt eining að mínu mati,
en hún var fyrir lífsleikni. Og gleymum ekki tónlistaratriðinu okkar, ég þóra,
alex og jón þór sungum og spiluðum hérna last kiss, sem hefði getað komið betur
út en tussaðist.. frekar óæft svo það mátti fyrirgefa það Eftir þetta allt
saman var svo þessi dýrindis kökuveisla, og svo fór ég heim að kúra mig og
unnar á bjórkvöld 4x4. />
> >
Einhvern sunnudaginn
fórum við í blíðskaparveðri upp í Kúagerði í Hjaltadal sem er hjá Garðarkoti.
Það er sumarbústaðurinn tengdó og við fórum öflugur flokkur og fúgavörðum hann,
og náðum sko ágætu tanni í leiðinni ;D Það var einmitt daginn eftir eitt af
skemmtilegusti partýum sem ég hef farið í hjá Fjólu og Lenu, sem héldu saman
upp á afmnælið sitt, við gáfum þeim bleikan pakka sem bjargaði ferðinni fyrir
okkur þar sem að við vorum búin að gleyma bleika þemanu,hehe kíktum einnig á
ballið í árgarði, og komumst svo heim með einhverri sætaferð. Svo hef ég
nú verið í ökutímum hjá bigga síðustu vikur og fór á akureyri á fimtudaginn
keyrandi, sem var bara gaman =D fékk svo æfingaleyfið á föstudaginn og brunaðði
með Hjölla í framsætinu í Varmó í afmælisveisluna hennar Söru sem varð 23.ára
4.júní. />
Á
laugardaginn ( í gær ) tók ég svo prófið á skellinöðruna, loksins, bjóst nú
aldrei við því að ná bóklega hlutanum, en var bara ein eina villu og hún var í
A-hlutanum. Munnlega prófið gekk eins og í sögu, prófdómarinn spurði mig sex
spurninga, ma hvort ég mætti reiða á vespu, um speglana, hjólalegurnar, ljósin
og bremsunar. Og svo var ég nú ekki látin keyra neitt alvarlega langt í
akstrinum, allavega ekki lengur en 5.mínútur, hehe />
Svo í
gærkvöldið var grill heima, Hjörleifur og Sara voru í mat, svo fórum við á Ábæ
og keyptum ís um tíu leytið.. og horfum á æsispennandi mynd á stöð 2, verð að
vita hvað hún heitir því hún var svo góð maður. Ég hef aldrei horft á mynd sem
ég bara hugsa ekki um neitt annað allan tíman en myndina fjúff. Í nótt keyrðum
við Unnar svo EddaB,SteppaVal og Helga Sævari í Krithól til Smára í smá
heimsókn. Komum heim um þrjú þar sem ég rotaðist úr þreytu og get varla enn
haldið augunum opnum af þreytu!! />
En það var
kökukaffi hérna áðan, benni á afmæli, drengurinn orðinn 25.ára ..þrátt fyrir
að harðneita fyrir það því hann er bara 24.ára. sem er nú ekki betra held ég ;] />
Þetta er komið gott. kv.Elín Árdís
»
20.05.2008 16:36:31 / ardisin
 Hæhæ =D
Komum heim í gærkvöldið frá hinni geysiskemmtilegu danmerkur-svíðþjóðarferð, sem var auðvitað frekar leiðinlegt svona til að byrja með, þeas að þurfa að fara heim, en það er samt alltaf gott að koma heim þegar upp er staðið =)
Ætla að segja frá henni svona í smáum dráttum ::
Þriðjudagurinn 13. maí. Mættum í skólann um átta leytið og vorum drifin í myndatöku misúldin um hálf níu Fengum peysurnar okkar afhendar þar sem mismundandi skondin letur voru rituð aftan á þær, og svo voru okkur gefnar þessar svaðalegur KB-banka húfur :] Lögðum af stað klukkan níu kát í bragði og fyrsta stopp var í Borganesi, þar var borðað og svo haldið á fyrsta áfangastað, Leifsstöð. Sumir misstu sig í að kaupa nammi, aðalega þeir sem aldrei höfðu komið í fríhöfnina og fannst auðvitað allt rosalega ódýrt á meðan aðrir bara sátu sallarólegir á kaffiteríum og fylltu magann fyrir þriggja tíma flug. Fórum svo í flugið um fjögurleytið er mig minnir Fólk átti misgott flug þar sem fyrstu veikindin auðvitað blossuðu upp í flugtaki. Lentum á Kastrum um níu leytið á dönskum tíma og drifum okkur út í tveggja hæða rútuna sem vakti mikla lukku. Keyrðum í hálftíma og komum á fyrsta farfuglaheimilið í Ishøj. Þar var okkur raðað niður á litlar íbúðir og var lítill svefnfriður þá nóttina... enda mjög spennandi að stelast á milli íbúða og blanda geði 

Miðvikudagurinn 14.maí. Það kom nú snemma dags í ljós hverjir höfðu staðið fyrir slæmum svefnfriði enda voru þeir frekar daufir í byrjun morguns. Enda vorum við vakin klukkan sjö, takið eftir FIMM á íslenskum tíma. Fengum alveg dýrindis morgnmat... og fórum svo í Køge í Hastrupskóla að hitta ''danina okkar'' Þeir tóku mjög vel á móti okkur, með ávöxtum og fíneríi, og svo trítluðum við heim til þeirra með töskurnar okkar. Hittumst svo niður í bæ um hádegi, öll saman og snæddum stærsta hamorgara sem ég hef á ævinni séð, enda gátu bara danirnir klárað þetta fyrirbrigði. Svo var ratleikur um bæjinn og við sáum kirkjuna, elsta hús í danmörku, smökkurðum danskar frikadeller, og alveg HRÆÐILEGAN ost.. það ostakallinn hefur sko alveg þurft að hafa fyrir því að smúla planið fyrir utan um kvöldið, haha Svo fengum við að versla pínu og fórum svo heim til dananna og borðuðum kvöldmat. Við fengum danska svínasteik sem var alveg æt. Hittumst svo öll í skólanum aftur, og sáum myndir frá því að þau voru á íslandi, og svo dönsuðu stelpurnar einhvern freestyle dans. Seinna um kvöldið fórum við nokkur saman í Keilu sem var mjög gaman Og svo fórum við heima að sofa.

Fimtudagurinn 15.maí. Þegar við vöknuðum var pabbinn á heimilu þar sem við vorum nokkur, ég, Silja, Þóra, Sigurður Karl, Halldór og Guðmundur Ingi, búinn að baka heita bollur og gera geðveikan morgunmat =) Þegar við höfðum borðað yfir okkur og kvatt pabbann fórum við í skólann, Þar fórum við í fótbolta og danskan hafnabolta (Brunball eða eitthvað) sem var gaman Svo var kveðjustund klukkan tíu og við fórum í tveggja hæða rútunni til Svíþjóðar. Fórum til Malmø, og prófuðum margt nýtt þar.. svo sem hjólabáta, laserdom og fórum í dýragarð með slöngum, froskum, köngulóm, krókódílum, öpum og leðurblökum sem skitu á axlirnar á einhverjum. Hugrökku krakkarnir fengu að halda á kirkislöngunni, og fannst það mis-sniðugt, allavega fannst mér þetta ógeðslegasta dýr sem ég hef á ævinni séð. Um kvöldið fórum við svo á nýtt farfuglaheimili sem hét eitthvað sem ég man ekki hvað var.
 Föstudagurinn 16.maí. Vöknuðum eldsnemma eina ferðina, og hittum sænskan skóla. Ég Þóra og Silja lentum hjá tveimur strákum, og vissum varla hvað þeir hétu fyrr en í miðri bæjarskoðum en þá hétu þeir Ali, og Bara, okkur fannst auðveldast að hafa það bara Alibaba En þeir fóru með okkur í búðir og pössuðu vel upp á okkur... eltu okkur allavega í hvern einasta búðarrekka, mér fannst það frekar fyndið ;D Fengum svo hádegismat í skólanum þeirra. Svo fórum við bara að versla það sem eftir var dags. Um kvöldið fengum við kjúlla og spjölluðum bara saman og svona rólegheit.
Laugardagurinn 17.maí. Fórum aftur til danmerkur og skoðuðum hafmeyjuna, höllina og alvarlegu gaurana sem löbbuðum fram og til baka og slóu skónum saman til að ögra okkur fyrir utan hana. Svo gengum við niður strikið, og það tók auðvitað sinn tíma, hittumst svo á Burger King klukkan þrjú og borðuðum. Svo loksins var komið að mestu tilhlökkun ferðarinnar, Tívolíinu   Það var auðvitað stappað að fólki, því það var laugardagur. En þetta var allt saman mjög skemmtilegt.. fallturninn sló held ég í gegn, og svo fannst mér töfrateppið alveg ólýsanlega skemmtilegt. En þessi róla þarna sem fór 80m upp í loftið og snérist svo... hún var bara til þess að styrkja magavöðvana, því maður var stjarfur allan tíman þetta var svo skelfilegt. Hittum 10.bekki úr Varmahlíðar og Húnavallaskóla sem voru þarna líka skólaferðalagi. Gistum svo aftur í Ishøj.

Sunnudagurinn 18.maí. Fengum að sofa út þennan dag, eða alveg til níu. Fórum svo í BonBon land, sem var án efa skemmtilegasti hluti ferðarinnar Þar voru sko rússíbanarnir... miklu skemmtilegri en þessir í Køben. Þar var líka miklu færra fólk og minni raðir. Fullt af nammi og algjör sæla =D Fórum heim um kvöldmataleytið til Ishøj, og fengum kjúlla, kvöldinu eyddum við svo á trampólíni í garðinu og fótbolta og fl. Þetta var síðasta kvöldið og átti sko aldeilis að taka á því í vöku.. en flestir sofnuðu bara um tólf leytið svo það var nú lítið úr því.

Á mánudeginum fórum við svo bara heim. Lítið vesen var í ferðinni.. en bara nokkrar skemmtilegar uppákomur sem ekki er einu sinni hægt að kalla vesen, það er að segja slatti að klámblöðum og dvd myndum sem fylgdi með.. kennararnir náðu nú samt bara að koma upp um eitt blað held ég og svo voru einhverjir snillingar sem keyptu sér þokulúðra aðeins til að krydda upp í eyrnaskítnum á fólki þarna
En þetta var ótrúlega skemmtileg ferð og henni verður nú seint gleymt en nú tekur bara alvara lífsins við, starfskynningar, fatasund, og svo bara vinna eftir útskrifitna, sem er auðvitað fínt
En er hætt þessu í bili þetta er komið gott vona að einhver hafi nennt að lesa þetta.
Kveðja Elín Árdís.
»
08.05.2008 19:44:42 / ardisin
hæ =D SAMRÆMDU PRÓFIN ERU LOKSINS BÚIN!!! og ég er farin að finna fyrir lífi á plánetunni!
Kláraði allavega stærðfræðina klukkan eitt í dag, skust heim, gerði minn sérrétt, ostabrauð í örbylgju með SeAsOnAlL.. og þurfti svo að fara á einhvern fund í skólanum, um skólaferðalagið sem við förum í á þriðjudaginn komandi.. =) og ég er pínu farin að hlakka til 
haha ballið í árgarði um síðustu helgi, þegar við vorum að keyra heim, sáum við líklegast þennan snilling sem hafði parkað uppá hliðinu við hliðiná ristahliðinu, þvílíkt dýr!!

En heyrst hefur, brjálað djamm í litla skógi annað kvöld? veit ekki hvort ég kíkji, Unnar er að koma svo ég verð líklega í móttökunefndinni En verð náttúrulega að sjá helstu sukkarana á svæðinu og athuga hvernig staðan verður orðin ;] hihi ..
Ætla nú ekki að hafa þetta árla langt, síðasta helgi var svaðaleg, tvö Geira-böll, að maður skuli ekki fá leið á honum, tjah það gerist seint !! Svo hafði ég hugsað mér að demba mér í pottinn með þeim gömlu .. verð svo að fara í búðina og kaupa 10.tómata fyrir morgundaginn, morgunmatur með kennurum og foreldrum sjáið til Skil samt ekki af hverju það stóð ekki bara 12.tómatar því að þeir eru alltaf sex í pakka, hallóó ? ? .. 
En jæja, nenni þessu ekki, ætla að skella inn tveimur illa hörðum af okkur Lilju síðan á 50.ára tónlistarafmæli Geira 
 -
 -ekkert smá eggjandi-
»
29.04.2008 20:01:17 / ardisin
Gott kvöld. (:
Jæja var komin með leið á þessum tínsuvörum hérna efst á síðunni þannig ég breytti útlitinu bara alveg.. sem er nauðsynlegt!
En samræmd próf samræmd próf, unglingar eiga víst ekki að hugsa um annað þessa dagana, en ég geri það alveg, horfði til dæmis á Unbreakeble í dag, á ENSKU takið eftir þar sem það er enskupróf á morgun, og svei mér þá ég komst áfallalaust í gegnum myndina :] Annars hef ég bara verið að fletta námsbókunum og slátra grænu hlunkunum í tugatali =) Þeir eru jú frekar góðir !!
En íslenskuprófið var í dag, mér fannst það alveg sanngjarnt, ekkert sveittlega erfitt allavega! og svo hef ég bara verið að lesa smá undir náttúrufræðina sem að er á föstudaginn .. :]
Annars hefur lítið drifið á daga mína, Unnar kom heim í síðustu viku á miðvikudaginn, og fór að rífa í sundur bíla, til að sameina í þann eina sanna, og svo skrapp ég á ,,tekið til kostanna'' sem var góð sýning =) Og svo fór helgin mest öll í að glápa á videó og éta nammi og læra smá og svonna 
Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra, þarf að fara að taka pabba í fótaaðgerð, pússa á honum tásurnar og svona, og ætla snemma að sofa, því það er dagur pirringsins á morgun í enskuprófinu =)
Ætla að setja eina kryddaða mynd af mínum uppáhalds með ;D
 Eins og Mæja í Brimnesi myndi orða það ,, Soldið svalar,haha '' ;D;D
Bæjó!
»
21.04.2008 12:15:25 / ardisin
Hæhæ.. =)
Er hérna í vinnunni .. á ekkert að vera að vinna, kíkti bara í heimsókn, og Þröstur kom með hvolpaaugun á mig.. og bað mig að vera hérna til hálf eitt.. og maður stenst hvolpaaugun auðvitað ekki .. En hann ætlar nú að kaupa af mér skólablaðið svo það er gott!!
Ég var í bókfærsluprófi, sem gekk vel, það allavega stemmdi sem er fyrir öllu.. og núna er ég bara að bíða eftir að komast í skólasund .. vá hvað það verður fínt, bara GOTT veður og læti!!=)
En danske menneskerne kommer i dag, og jeg glæder mig so meget til det at jeg kan ikke venter after dem, eller joo jeg kan jeg vider ikke hvem jeg far hjem til mig, men jeg ved at det er to pige.. Við stelpurnar.. elín þóra og silja vitum hreinlega ekkert hvað við eigum að gera við þær.. allaveg gefa þeim að borða og svona.. en á morgun verður svo farið í einhverja ferð í skólanum þannig við þurfum ekki að hafa áhyggjur af morgundeginum 
En ég skrapp suður um helgina.. fékk far hjá einhverjum Frumherjakalli og hann henti mér út hjá Smáralind.. þar verslaði ég eitthvað smotterí..snyrtidót og bol og gollu og svona.. Unnar sótti mig svo þegar hann var búinn í vinnunni, og við fórum heim til Söru og Hjörleifs.. keyptum okkur pítsu og brauðstangir og hlustuðum á okkur fitna yfir bandinu hans Bubba ..gat ekki verið ljúfara..  Unnar fór svo að vinna klukkan átta á laugardagsmorgun á meðan ég svaf út..=) svo kíktum við í Kringluna þar sem allt var stappað af fólki.. þaðan fórum við í Holtagarða, og svo kíktum við líka á íslandsmót í iðngreinum í laugardalshöllina Fórum svo í álfkonuhvarfið með útúrsveittar tær af labbi, og tókum pínu hvíld, þangað til að við fórum til Svans,Rutar og Þórhalls í grill og gotterí =) ekkert smá mikil veisla og gríðarlega ljúffengt =) Litli stubbur búinn að stækka heilmikið og er alltaf jafn krúttulegur =).. en þegar hann var sofnaður skelltum við okkur í pottinn í blíðunni og steiktumst þar í tvo og hálfan tíma á spjallinu vo fórum við bara í háttinn. á sunnudag vöknuðum við svo bara snemma í blíðunni, fengum nýbakaðar bollur og mjólk.. mhm  Horfðum svo á one tree hill, og fórum svo í intersport, fengum okkur dominos brauðstangir og hneyksluðums á verðunum á öllum merkjadraslinu í búðunum 
Svo fékk ég far heim hjá Bjössa og Þórunni.. og svaf alveg doldinn góðan dúr í bílnum Þegar ég kom heim vann mamma í því að gera mig öfundssjúka með því að sýna mér myndir úr ferðnni sem þau fóru í á sleðum...og ég gerði e-ð verkefni í bókfærslu fyrir prófið.. horfði svo á einhverja mynd sem var í sunnudagsbíó.. gríðarlega spennandi 
En nenni ekki að hafa þetta lengra..
Takk fyrir mig, elín árdís
»
17.04.2008 22:52:18 / ardisin
 haha svöl mynd ;D Gott kvöld 
Langaði skyndilega að blogga úr því að ég er komin með þetta svaðalega lyklaborð sem mútta splæsti í, í vikunni =D .. þetta er hreinlega allt annað líf =)
En ég var að vinna til sex í dag.. fínn vinnudagur, steikti sveitta burgera í hádegjinu handa okkur pabba og svonna
Svo í kvöld tók ég mér kvöldgöngu um túnin.. skrapp í Messuholt, Kimbastaði og Lyngholt og seldi þessu gamla pakki skólablaðið góða =)
Hef hugað að skella mér suður yfir heiðar... og jafnvel dvelja þar yfir helgina.. kíkja í búðir, hitta hann Unnar minn ástkæra, og kíkja á bróður hans og litla peyjann ... og svo förum við auðvitað í sund eins og alltaf, og nú ætla ég að vinna kallinn í bringunni ;P Við Fjóla erum búnar að vera svo duglegar að synda að ég ætti að hafa þetta En fæ far hjá einhverju, Frumherjagæja sem heldur til í Hlégarði núna 
Annars er lítið í fréttum ég sendi pabba á danafund í skólanum í kvöld, þeir koma á mánudaginn.. og ég Þóra og Silja ætlum að taka tvo saman það verður nú vonandi skemmtilegt.. :] fengum að skoða bréf frá þeim í dag... og það voru sko lagðar inn pantanir en við völdum bara gelgreiddu töffarana í myndinni..og giskuðum á hvað þeir hétu 
Vil enda þetta á að óska Palla til hamingju með daginn, hann er 18.ára í dag og kemst því á barinn, en frábært
En jæja þetta er komið gott... ætla að skella inn nokkrum myndum hérna til uppliftingar.. 
Góða nótt .. Kv. Elín Árdís =D

Hvatningarverðlaunin..

Þetta sést ekki oft, Björn faðir minn á artic cat ;O
»
15.04.2008 16:05:49 / ardisin
Jæja, best að halda þessu við og láta aðeins í sér heyra!!
En árshátíð unglingastigs kláraðis í síðustu viku, sem var nú aldeiliss ágætt, við tókum 2.þátt úr leikritinu, þannig ég þurfti að mæta á allar sýningar, og btw djöfull var elliheimilis-leikritið fyndið hjá 9.bekk =D hef sjaldan hlegið svona mikið samfleytt!
Svo voru bara þessir blessuðu stærðfræðitímar hjá farskólanum sem ég fer alltaf í á mánudögum og þriðjudögum, er einmitt að fara í einn núna strax eftir vinnu klukkan sex !!
Frekar rólegt í skólanum enda bara tvær vikur eftir, samrænd próf og svo danaveldi.. það minnir mig á það að danirnir koma í næstu viku! en frábært.. .. Er ekki alveg að fara að kingja því að fá einhvern dana í sveitina.. bara.. hvað langar þig að gera..?? skoða hestana hans afa..nei held ekki...
En Unnar kom um síðustu helgi eins og eiginlega alltaf nú orðið, og við gerðum bara mest lítið á föstudagskvöldið, gerðum tilraun til að horfa á playboy stöðvarnar á skjávarpinu en það þurfti lykilorð.. svo við bjölluðum í Frigga, sem reyndi að ljúa að okkur lykilorði sem auðvitað virkaði ekkert
Ég var að vinna á laugardaginn, og hef aldrei upplifað vinnu á laugardegji sem hefur liðið svona hratt =D .. svo fórum við unnar heim í sveit og steiktum okkur sveitta burgera, og fórum svo að þrífa og bóna svölustu bílana í firðinum, eða corolluna mína, tesselinn hennar Gunnu, og honduna Unnars vorum í þessu til klukkan sjö og fengum svo hrísgrjónarétt í kvöldmat, sem var án efa EKKERT SMÁ GÓÐUR =) Svo sturtuðum við okkur og Friggi náði í okkur.. fórum heim til hans og horfðum á söngvakeppnina með ella, ása og magga & ég er ótrúlega ánægt að við höfum náð öðru sætinu... enda eiginlega með besta lagið!!
Á sunnudaginn kláruðum við að bóna honduna, og ég fór svo í fermingu til Krissa frænda á Völlum :] Svo fór ég aftur til Unnars þar sem hann var að láta Hiluxinn úr höndum sér, mjög harmþrungin stund .. 
Enn í gær var svo einhver forsetafjölskylduskemmtun í íþróttahúsinu, þar sem við vorum með atriði úr skilaboðaskjóðunni, ég söng þessa blessuðu vögguvísu og svo tókum við lokalagið Svo fékk ég líka viðurkenningu frá Forsetanum sem snérist um einhverja hvatningu mjgö skemmtilegt allt saman 
En segjum þetta gott, er farin í kaffi, búin að leysa Fjólu af á kassanum 
Kv. Elín Árdís =D
»
08.04.2008 11:52:07 / ardisin
Helgin ;; Föstudagur - Fór að vinna til klukkan 18:00.. kíkti þá úr í Sporthöll þar sem karlarnir voru að þrýfa gólfið og gera allt klárt undir ice-hobby sýningu að hætti Birkis sem fór fram á laugardegjinum J .. Svo hringi Jakob og við fengum okkur að éta á N1 og spjölluðum um heima og geima, ótrúlega langt síðan ég hitti Kobbzenegger!;] En svo fór hann heim með einhverri konu sem hann þekkti ekki neitt, hann sagði einmitt að það væri alltaf jafn skemmtilegt að sjá einhvern á N1um og bara.. ,,fyrirgefðu ert þú Sigrún?‘‘ konan ;; jáá.. =) ‚‘já ókei, ég á að fá far hjá þér heim‘‘ hihi =D En svo skrapp ég bara heim og sturtaði mig, tók sleðagallann til, og ræsti svo Matta og við brunuðum aftur úr í Sporthöll, og svo þaðan upp í Birkihlíð þar sem Unnar nýklippti var =) Gerðum mest lítið um kvöldið, rúntuðum, keyptum ostapopp, litum heim í sveit, og fórum svo að sofa, því hann þurfti að fara snemma á Reyðar- eða Seyðisfjörð að sækja nýja Hefilinn með pabba sínum. Ég vaknaði aftur á móti klukkan sjö við vekjaraklukkuna mína, og snooze-aði að gömlum vana en gat hreinlega ekki sofnað aftur fyrir spenningi ;D Ég reif mig á fætur, og skaust heim á Marteini, vorkennti kindunum í Áshildarholti sem stóðu sjarfar á túninu og virti fyrir mér veðráttu dagsins, hún leit nú ekki alveg jafn vel út og hún raunverulega var!! Þegar heim var komið, var heimilisfólkið að opna augun smátt og smátt, og ég settist bara með kornflex í skál og horfði ár barnaefið. Klukkan hálf tíu fórum við svo á N1 þar sem var mæting í sleðatúrinn, alls voru e-ð um 90 sleðar. Þaðan var svo farið upp á plan og tekið af. Þetta byjraði ekki vel þegar það kurlaðist reim í M8-unni og það tók smá tíma að skipta en eftir það átti hann eftir að standa sig.. J Leiðin lá upp í Skagaheiði, það var geðveikt veður, og færið gott við stoppuðum við Aravatn þar sem, Jói & Golli voru að veiða silung í gegnum klakann, mjög sniðugt ferli. Eftir um það bil klukkutíma stopp var farið í Trölla og þaðan haldið heim. Engin slys voru sem betur fer, en tveir sleðar urðu fyrir tjóni eða biluðu. Þegar í krókinn var komið fórum við bara á sýninguna, og svo heim í sturtu. Það var þéttsetið í pottinum og flæddi uppúr honum á tímabili þegar Elli stökk ofan í hann á bikínibrókinni hennar mömmu, þetta var ansi fyndið andartak ;‘D Svo var hringt í Júlla taxa og farið á barinn, snætt mat og horft á myndasýningu, svo var ball á eftir. Unnar kom á ballið loksins þegar þeir feðgar vorum komnir að austan, og þetta var barasta aldeiliss ágætt allt saman. Komum mömmu og pabba heim í einhverjum agalegum kagga, og þau hæst ánægð með þetta!! Á sunnudaginn fengum við pönnsur að hætti Gunnu tengdó í hádegjismat og fórum svo í skúrinn og tókum Hiluxinn í alsherjar hreingerningu, að innan sem utan.. að vísu með smá pásu, þegar við Þurftum að horfa á mannaveiðar .. endursýninguna =) En pöntuðum svo pítsu, og Unnar & Obba héldu suður á leið Er núna í ensku, fengum að fara í tölvurnar, því það vantaði kennarann, mjög ljúft =D Er að kálast úr hungri og bíð spennt eftir ‚‘kjöti í karrý‘‘ .. hef aldrei smakkað kjöt í karrí En segjum þetta gott ég smelli inn sólskinsmyndum hérna á næstunni..  Hilsen Elín Árdís .. ;D
»
01.04.2008 16:07:01 / ardisin
Hæ =)
Hef nú lítið til að blogga um en látum á reyna.. Gerði ósköp lítið um helgina.. Unnar kom á föstudaginn, og við fórum bara í hlíðó og keyptum nammi og búðarpizzu, grilluðum örbylgjuofninn í einhverjum misheppnuðum tilraunum á að fá svaðalega pizzu, en hún varð bara eins og þessi venjulega búðarpizza.. frekar lin og góð =D En fórum svo bara snemma að sofa, því ég var að vinna á laugardaginn. Eftir langdreginn, en stuttan vinnudag fór ég á jarðaförina hjá Diddu ásamt nokkurra fjölskyldumeðlima.. jarðaförin var mjög falleg, álftagerðisbræður voru að syngja og þetta fór vel fram Það var læri og hryggur í kvöldmatinn, ótrúlega gott, og svo var ís með jarðaberjum og sósu'la Sara úber góða mars-sósan =) Svo komu Halla & Edda og sóttu okkur systkinin, Hjölli fór í e-ð partý og við rúntuðum, kíktum svo smá til Klöru og rúntuðum meira, vorum eltar af heimskum vinnufélögum mínum Sem var auðvitað bara frekar skondið ;'D
Svo lá leið okkar niður á Fornós og þar sóttum við Unnar og Elvar, og komum þeim bara sem fyrst á barinn, hihi =D
Sunnudagurinn var letidagur, sváfum bara út, og fengum okkur svo pizzu á ábæ og skruppum í sveitina og fengum okkur ís.. og lögðum okkur Svo fór unnar bara suður eftir kvöldmataleitið... ég horfði á gríðarlega spennandi þátt af mannaveiðum og fór svo að sofa.. 
Enn annars er lítið í fréttum.. við móðir fjárfestum saman í bíl í gær.. Toyotu corolla 2006. mjög góð kaup vona ég allavega sætur gripur =D
Stærðfræðitími strax eftir vinnu.. og svo VONANDI keyritími, en hver veiiit..  En ég segji þetta gott í dag  kv.elín árdís =)
»
25.03.2008 19:19:18 / ardisin
Hæhæ & Gleðilega páska!!
Vil byrja þetta blogg á að þakka honum unnari mínum fyrir ómetanlega fallegt blogg hérna fyrir neðan, hefði ekki getað haldið þessari síðu uppi án þín, hehe hóst..
En páskarnir fóru vel fram, það var fínt veður, það var slappað af, leikið sér, skemmt sér og étið yfir sig, betra lífs hefði ég ekki getað óskað mér =) En nú er sælan búin og leiðindin taka við, vinnan & skólin og eitthvað sem mig langar einu sinni ekki að hugsa um, SAMRÆNDU prófin! btw. ég er ekki byrjuð að læra undir þau og er ekki að fara að gera það á næstunni..
En annars er lítið í fréttum, páskarnir voru góðir, Unnar kom heim á þriðjudaginn, & Sara & Hjörleifur á miðvikudag =) Var að vinna í síðustu viku fram á fimtudag, vorum að mála gólfið á Eyrinni, þar rústaði ég adidas inniskónum mínum í epoxy gólflakki! Og ætla ekki að leggja þetta fyrir framtíð mína.. Á fimtudag var sofið út og svo fór ég í partý um kvöldið til Eyrúnar,Röggu&Önnu í félagsheimilið í nesinu, þar var hörku stuð! búningapartý & mér fannst Biggi á Seylu fyndnastur sem einhver pólverji með jólasveinakollhúfu, aaa það var svo fyndið ;'D
Skrapp í fermingu á föstudag, og svo fórum við pabbi á sleða, fórum upp í Þúfnavelli&Trölla og lentum í flottum atriðum  Á laugardag man ég ekki hvað við gerðum, fórum allavega á ball á Blönduósi með Á móti sól.. sem var gaman =) Byrjuðum að vísu í teiti hjá Friðriki nokkrum og fórum svo með Ingu og Eysa vestur.
Og á sunnudag fórum við Unnar heim í sveit og smölluðum einu eggi að stærð fimm sem innihélt málshátt sem hljóðaði einhvernveginn, en nammið var fínt samt skil ekki hvað þeir eru að troða þessum vondu landsbankamolum inn í þessi dýrindis-egg!! Skruppum svo upp í Kolafjall sem ég held það heiti, og Unnar fór að hjakkast í brekkum á meðan ég renndi mér niður á snjóbrettinu mínu Þegar niður var komið hitti ég Finn,Sindra,Bigga, og Gunnu, sem skuttluðu mér út á plan að sækja sleðann & tók smá hring með uppgefnum og vonlausum bling-bling drengjum og Ingu Maríu ski-doo gjellu =D
En þetta er komið gott, nenni þessu ekki, langar í sturtu, er ógeðslega drullug og yfirgnæfð af leiðinlegum anda Eyrarinnar, var að vinna í dag!! og hef því ákveðið að enda þetta!!
Verið öll blessuð og sæl.
-Elín Árdís :]
»
13.03.2008 23:27:54 / ardisin
Jæja Elín hér... er mætt með blogg þótt ég sé að deyja úr leti og nenni því aldrei þótt ég hafi ekkert að gera það er lítið að gera gerast hjá mér þannig að ég nenni ekki að gera meir bæjó 
»
Síður: 1 2 3
|
Textabox
elín árdís björnsd. 1992 =)
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|